"Þú lýsir allt upp í kringum þig!".. Bubbi Morthens um vefstjóra! ;);)
Þekkið þið HEIZZA?
06.02.2010 22:48:49 / HeiZZi

Endurnýjun lífdaga! / Eurovision 2010

Sæl verið þið!

Hef ákveðið að hjálpa sjálfum mér við að hreinsa hugann með því að rita nokkrar línur hér af og til. Orðið ár og dagur síðan síðast.

Í kvöld var ákveðið hvaða lag myndi fara sem fulltrúi íslendinga í Eurovision sem verður haldið í Osló í maí nk. Ég spáði hárrétt fyrir um úrslitin, sagði að Hera myndi vinna en Jógvan kæmi þar á eftir. Ekki vegna þess að þetta væru mín lög í keppninni, heldur vegna þess að ég þekki íslensku þjóðina. Íslenska þjóðin er áhrifagjörn eins og meðal leikskólabarn. Hera var valin áfram þar sem að hún var með týpískt júróvisjón lag og syngur vel. Auk þess er Örlygur Smári löngu orðinn klassískur júróhöfundur. Litið var framhjá því að þetta sé mun slakara lag en This is my life (þó það sé svipað að upplagi) sem fór út 2008 ogvarð í 14 sæti.
Jógvan varð í öðru sæti með sinn karakter... mætti þó segja mér að það að Bubbi Morthens og Óskar Páll (sem samdi lagið hennar JG í fyrra) sömdu lagið hafi eitthvað haft að segja í hjörtum eurovision þjóðarinnar Íslands.

Ég var ekki mjög hrifinn af undankeppninni í ár. Ef við tökum sem dæmi undankeppnina fyrir 2 árum þegar að Eurobandið, Mercedes club, Dr. Spock of fleiri kepptu, þá var þessi keppni á mun lærra plani.

Þó þótti mér Hvanndalsbræður skemmtilegir, sem og Matti Matt sem var líklega með langbestu frammistöðu kvöldsins. Ég er þó ekki í vafa að ef við hefðum viljað sem bestan árangur þarna úti þá hefði verið skynsamlegast að senda Sjonna Brink. Ástæðan er sú að á hverju ári er eitthvað atriði í eurovision sem er ekki klassískt en svínvirkar samt. Ég vil meina að þetta hafi verið efniviður í slíkt atriði. 5 sólbrúnir menn í hvítum skyrtum og gallabuxum berfættir í jolly fíling að syngja um waterslide. Hefði varla getað klikkað. En því fór sem fór.

Veldur mér alltaf hálfgerðum vonbrigðum hvað Íslendingar eru fyrirsjánanlegir. Hef aldrei nokkrun tíma verið hissa í þessum söngvakeppnum sjónvarpsins. Maður veit alltaf hvað koma skal. Ojæja... blóðþrýstingurnn er betri á meðan....

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.12.2007 17:43:01 / HeiZZi

Verðlaun ársins 2007!!

Jæja góðir hálsar! Þá er komið að árlegri verðlaunaútnefningu gifsveggja 2007! Þetta er orðinn árlegur viðburður og ómissandi liður á gamlársdag hjá öllum íslendingum nær og fjær.

Árið í ár hefur einkennst af ábyrgðar og skynsamlegheitum hjá ýmsum mönnum sem eru því óvanir en öngu að síður hefur nú ýmislegt gerst sem gefur tilefni til þessa skrifta! Komið hefur verið að mönnum í bólinu, aðrir hafa orðið strandaglópar uppi í sveitum og enn aðrir völdu sér nýjan uppáhalds "lit" á árinu;) 

Ég ætla að nota tækifærið í leiðinni og óska öllum mínum vinum og kunningjum nær og fjær gleðilegs nýrs árs með þökk fyrir það gamla. Vonandi mun nýja árið færa í skaut mikið af fylleríslátum, manutd sigrum, nöldri í frissa, og almennum gleðiskap.

Hözzler 2007: Gríðarlega erfitt val þar sem menn höfðu óvenju hægt um sig á árinu í þessum geira. Mikki klúðraði áramótaheitinu og hinir sigldu lygnan sjó í sama farinu og síðustu ár... að mestu;)  Einn maður stóð upp úr að mínu mati og stendur uppi sem ótvíræður sigurvegari, ekki síst vegna hins sanna íslenska veiðieðlis sem lýsir sér í því að sækja bráðina upp í afdæli og þurfa að hafa mikið fyrir því, enda um farfugla að ræða í nokkrum tilvikum. Ég er að sjálfsögðu að tala um frænda minn og tjörnesinginn Guðmund Aðalsteinsson (Mumma) sem hlýtur þar með titilinn "hözzinn 2007"!

 

Kúrari 2007: Með þessu er verið að meina, sá sem hefur verið mest innanveggja með unnustunni á árinu án þess að blanda mikið geði við félaga sína og kunningja. Þessi maður hefur á árinu lært að: elda, skúra, kúra, meta rómantískar myndir, elska Egilsstaði, hætta að drekka að mestu og margt fleira;) Hann er efnilegasti framtíðarfjölskyldumaður landsins í dag og hefur núþegar titillinn Búfræðingur. Ég er að sjálfsögðu að tala um Tjörnesinginn Bjarna Jónasson frá Héðinshöfða!

 

Sveitasex 2007: Að sjálfsögðu Vogasex Mikka og Kópaskersgellunnar í maí. Hvað annað??

 

Vandræðalegasta þynnkan 2007: Kiddi Lund hlýtur að eiga heiðurinn þegar ferming mágs hans átti stað (sjá annál).

 

Busted fu***** 2007: Sonni minn... til hamingju;)

 

Planari 2007: Nóri hlýtur að eiga þennan titil, enda ætíð eitthvað í plönunum hjá kallinum;)

 

Mesta íþróttaáfallið 2007: Nú gæti einhver haldið að ég væri að tala um einhvern keppanda í íþróttum en því fer fjarri, því ég er að tala um viðbrögð Gunnþórs Sigurgeirs við tapi mufc fyrir chelsea í bikarúrslitunum. Hann lagðist í rúmið.

 

"Grand á því" 2007: Ásgeir *Þór hlýtur að eiga þetta, enda spreðað töluvert undanfarið í snilldartæki og stóla sem notast til afþreyingaiðkunar á Höfðanum. Til gamans má geta að kallinn á líka 2 tölvur heima hjá sér.

 

Djammklæðnaður 2007: Miki!!!... í hvert skipti sem hann klæðist rauða jakkanum sem hann keypti á 2000 kall í dressmann!!

 

Skotamanneskja 2007: Jamm..... ég ætla að gefa Snædísi þennan titil eftir frammistöðu hennar heima hjá Nóra snemma á árinu, létum hana hafa stærsta glasið og nýliðinn rótburstaði þetta;) Ef við snúum líka aðeins út úr titlinum þá má þess til gamans geta að hún er dyggur aðdáandi skosku þjóðarinnar!!

 

Enskumælandi 2007: Ég og Gunni Siggi hittum írska menn á bar í manchester og það eina sem gunni sá sér fært að segja við þá var "Gudjohnsen". Því fær hann heiðurinn af enskumælsku ársins 2007:)

 

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.12.2007 20:00:23 / HeiZZi

Annáll fram í apríl 2007- mál að linni!!!

Jújú, ekki láta líða yfir ykkur, ég er að blogga.

Er hér að grúska í heimilistölvunni á sandhólum og fann hér annálinn sem ég ætlaði að vera svo duglegur að skrifa um það sem hefði á daga okkar drifið á þessu ári.

Annað árið í röð klikkaði ég (í fyrra entist ég fram í ágúst!!!). Ég kenni fartölvuleysi um! Um leið og eitthvað gott gerist hefur maður ekki sinnu til að skrifa það niður hjá sér og bíða svo eftir að geta skrifað það inn í heimilistölvu við tækifæri.  Þetta væri ekki vandamál ef maður hefði alltaf fartölvu við hendina!!!

En allavegana þá ákvað ég að henda inn þessu sem ég var kominn með sökum þess að margt þarna er býsna sniðugt;)

Ætli ég hafi ekki þann háttinn á að ef einhverjum misbíður eitthvað (sem ég stórlega efast um) þá skal ég með ánægju fjarlægja þann punkt við fyrsta tækifæri.

 En hérna er þetta:

Annáll 2007!

Annáll 2007:

 

Janúar:

 
  • Áramótaheitin voru óeftirtektarverð, helst bar að nefna áætlanir Mika um að tvöfalda tölu sína í lögðu kvenfólki á árinu (úr fjórum í átta)!
  • Bertarinn fór hamförum í áramótateiti Benna Bennelli og talaði af mikilli ástríðu um hvað kálfarnir á David Beckham væru sexy og hot!
  • Bertarinn var einnig í eldlínunni seinna í mánuðnum þegar hann lenti í útistöðum við Færeying niður á Bauk sem þóttist vera einhver gangster J
  • Undirritaður hitti Sigga Mongo fullan á sunnudegi í esso og þurfti að þola heldur langt spjall um hans fjölskyldumál!!
  • Óskar Jóhannsson hætti með Leiguna og staðnum varr lokað fyrir fullt og allt.
  • Ég byrjaði í málaradeild VMA
  • Ég og Guðmundur fórum í fína ferð vestur í Staðasveit þar sem við m.a. skruppum til Ólafsvíkur!
  • Bjarni á Héðinshöfða hætti að drekka fram í apríl að eigin sögn eftir skrautlegt fyllerí á þorrablóti á Tjörnesi!
  • Gunni Jó sækti um meðhjálparastöðu um svipað leyti og ökuskóli hans var kominn á fullt.
  • Óskar Jóhanns sótti einnig um stöðuna.
  • Gísli Árni byrjaði aftur að drekka eftir 18 mánaða hlé og hélt upp á það með góðu fylleríi á Húsavík ásamt Finn, Snemma, Mika, Sonna, Nóra og Bjarna og frú. Ég komst því miður ekki vegna veru minnar á Snæfellsnesi.
  • Lið Gunnþórs Sigurgeirssonar lék vel á hinu árlega Laugamóti, án þess að úrslitin yrðu eftir þvíL
  • Gunni Bald tjaldaði nýrri skegggreiðslu
  • Miki komst á séns á með heimsætu í Kelduhverfi á þorrablótinu þar, þrátt fyrir kröftug mótmæli DolluJ
  • Eldúsborð nokkurt á Egilstöðum var notað undir samfarir einn góðan laugardag þessa mánuðar.
  • Ég vann Sonna 11-3 í FIFA 2007 í 10 mínútna leik. Ég var Nígería en hann Króatía ;)
  • Frissi komst á séns á þorrablóti Kvenfélags Húsavíkur
  • Ég, ásamt Gunna Sigga og Jósteinni, vvValda, Jónasi Emils, Simma Hreiðars og frú, Danna og frú og Mása fórum þann 30 janúar til Englands. Fór ég á 3 leiki, Reading-Wigan (3-2), Man.Utd-Watford (4-0), og Fulham-Newcastle (2-1). Einnig var farið á vaxmyndasafnið og síðast en ekki síst hið frábæra Queen söngleik!
  

Febrúar:

  

·        10 manns gistu fangageymslur sömu nóttina á Lögreglustöðinni á Húsavík

·        Alli Jesú ákvað endanlega að eignast aldrei krakka

·        Gunnþór Þórarins var tekinn fyrir ofsaakstur í vistgötu á Akureyri

·        Bjarni féll á fyrrnefndu drykkjuhléi og var blindfokkingfullur í Sjallanum á Akureyri.

   

Mars:

 

·        Bræðurnir Billi og Sonni fóru í stranga megrunarkeppni í marsmánuði  þar sem þeir voru orðnir  alltof feitir að eigin sögn. Settu þeir ströng refsiákvæði gagnvart hvor öðrum ef þeir myndu þyngjast í átakinu.

·        Nóri seldi Corolluna sína í mars, alla leið til Helgu Bjargar.

·        Ég fór á íslandsmót iðnaðarnema í Kringlunni.

·        Snædís átti stórleik í partýi í Árholti 20!

·        Bjarni Jónasson beilaði á hverju fylleríinu á fætur öðru

·        Galantinn minn fór í viðgerð eftir að hafa staðið óhreyfður í hálfan mánuð á akureyri.

·        Snemmi heimsótti Húsavík í heila viku, skrópaði í skólann og alles.

·        Völsungar töpuðu 6-0 fyrir Leikni R í Boganum, fóru svo og duttu í það á Herrakvöldi félagsins

·        Billi fékk sér nýtt mótorhjól

·        Bræðurnir Billi og Sonni hættu í megrunarátaki eftir eina viku af hetjudáð þar sem þeir náðu samtals að kötta af sér 500 grömmum. Virtist vera óumdeild samstaða hjá þeim bræðrum að nú væri kominn tími til að láta gott heita! :D

 

Apríl:

 

·        Ljótu Hálfvitarnir troðfylltu Skjólbrekku á föstudaginn langa og Baukinn tvívegis daginn eftir. Er orðið ár og dagur síðan að einhver norðlensk hljómsveit hefur náð að smala álíka fólksfjölda á tónleika hjá sér.

·        Miki varð ástfanginn af giftri konu á balli

·        Húsvíkingur handleggsbrotnaði á páskaballinu

·        Nóri varð strandaglópur í Hótel Seli eftir kellingastand

·        Kiddi Lund beilaði á parketlögn með Ragga Rosalega vegna fermingar mágs síns sem átti að vera sama dag

·        Kristinn Lund varð alltof seinn í fermingu mágs síns vegna þynnku.

·        Kristinn J. Lund lenti í slagsmálum á páskaballi

·        Líka Sveinbjörn

·        HafsteinnSvavarKjartansson mætti í Cat peysunni á djammið um páskana.

·        Sonni seldi Súbbann og fékk sér Mözdu 6 2002, hann var þar með orðinn “hönk” ;)

·        Siggi Valli og Halla Björg urðu foreldrar

·        Ég og Snædís fórum í pizzuveislu hjá Framsókn

·        Það kviknaði í sorpeyðingarstöðinni

·        Frissi var orðaður við hárgreiðsludömu í bænum

·        Ég flutti í lok mánaðarins frá Strandgötu 43 eftir 3 og hálfsmánaða dvöl. Rúmið hans Nóra var meðal þess sem galantinn bar austur;)

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 18:33:37 / HeiZZi

Innflytjendur

Alltaf skal þetta geta gert friðsælustu veislur að blóðugum slagsmálum. Fólk virðist vera gríðarlega ósammála um þetta málefni enda mjög umdeilt.

Nú er svo í garðinn komið að í hverju einasta krummaskuði er hægt að finna haug af Pólverjum sérstaklega, og/eða fólki frá öðrum þjóðernum sem komið er til landsins í leit af peningum og betra lífi. Ástæðan fyrir komu fólksins er í mörgum tilfellum eins og áður sagði peningar þar sem íslensk verkamannalaun eru betur borguð en úti í löndum.

Engu að síður eru útlendingar ódýrara vinnuafl en íslendingar í oft þúsundþjalasmiðir sem nota má á margan hátt. Þeir eru tilbúnir í öll störf á meðan að íslendingar segja "ég mun aldrei vinna við svona ógeð" o.s.frv.

Sum sé allt fyrir aurinn....

Auðvitað er síðan hellingur af fólki, sérstaklega frá austantjaldsþjóðum sem koma úr stríðsástandi og eru einfandlega í leit að betra lífi.

En hvað er athugavert við þetta...? Margir vilja meina að verkafólkið komi hér í ákveðinn tíma, spari eins og það geti allan tímann og flytji svo út með hagnaðinn. Hvað græðum við á komu svona fólks, eru spurningar sem maður hefur oftar en einu sinni og tvisvar heyrt útundan sér.

Sumir eru hinsvegar óánægðir með það að útlendingar setjist hér að í svona stórum stíl, fái ríkisborgararétt o.s.frv. Þetta eru þeir sem vilja vernda hinn íslenska kynstofn.

"Ísland fyrir íslendinga"... söng Bubbi.

Hvað finnst ykkur?

 

P.S. Fyrir þá sem vilja tjá sína skoðun þá er ekkert af þessu skrifað frá mínu eigin brjósti, heldur eru þetta pælingar fólksins í kringum mig. Með þessu vil ég tryggja að fólk fari ekki að kalla mig rasista og útlendingahatara þó svo að ég skrifi pisitil um þetta málefni.

 

Bertarinn og allir hinir... koma svo!!! 


» 8 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 18:12:52 / HeiZZi

Skoðanakönnunin!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.01.2007 18:33:01 / HeiZZi

Loksins loksins

Sæl verið þið...

Eftir mikla leti fyrir og eftir hátíðarnar hef ég loksins tekið mig til og byrjað að skrifa. Byrjum á því sem ég ætlaði að setja inn á gamlárs.... "Ársins 2006":

Fyndnastur ársins: Karl Hannes

Hökutoppur ársins: Mikki

Bensínkombakk ársins: Ævar

Afmeyjari ársins: Bjarni Jónasson, Héðinshöfða

Utanfari ársins: Tukki

Drykkjumaður ársins: Nóri

Minnst heima ársins: Guðrún

Hözzlaðferð ársins: Karl Hannes á hjöllunum 20 maí ;)

Rúntari ársins: Gunni Siggi

Ritstjóri ársins: Bertarinn

Mömmustrákur ársins: Áss-geir Þór

Kippa ársins: Heineken kippan sem Snemmi kláraði svo eftirminnilega á Benidorm!

Treyjukaup ársins: Kamerúntreyjan hans Snemma frá Beni!

Tan ársins: Elli Hambó

Hözzler ársins: Bjarni

Reyðfirðingur ársins: hafsteinnsvavarkjartansson

Klósettheillari ársins: Mikki

Dansari ársins: Elli Hambó

Vonbrigði ársins: Hríseyjarhátíðin

Fjölskyldufaðir ársins: Gunnþór Sigurgeirs

Bjór ársins: Viking gylltur

Pikk-up lína ársins: “Fucky fucky, Sucky sucky, 40 Euros!”

Djammklæðnaður ársins: Einar Halldór með derhúfuna!

Bloggari ársins: Róbert Hlynur Baldursson

Töffari ársins: Tryggvi Tóbak

Lögga ársins: Ómar Annisius

Tónlistarviðburður ársins: Nóri Live at Gamli Baukur (Maí)!

Símagelgja ársins: Snemmi

Hárgreiðsla ársins: Siffi Þrása

Hógværð ársins: Reynir Jónasar

Forvitni ársins: Hilma (dóttir Kríunnar) ;)

Slappasta tilraun til bloggafreka: Nóri (hlýtur titilinn fyrir margar síður) ;)



Annars ákvað ég að stela nokkrum kvikmyndagagnrýnum sem væntanlegar voru á mickro.bloggar.is njótið vel:



Gigli: Ömurleg mynd með J Lo og Ben Affleck. Tók hana tvisvar og horfði á með mömmu. Flott grafík og voðalega rómó og skemmtilegt.



The Wedding Planner: Fór á hana 3svar í bíó, fyrst með sonna, svo nóra og loks síjó ármanns (hafði engann annan til að fara með). Viðbjóðsleg mynd með J Lo sem er frábær í hlutverki brúðkaupsskipuleggjarans. Tók hana þegar hún kom á VHS og horði nokkrum sinnum á hana með mömmu og máa. Snilldarmynd.





Marta má ég kynna: Frank, Daniel og Lawrence: Bresk rómantísk bíómynd með afbragðs tæknibrellum og fíneríi. Hef oftast þurft að horfa á hana einn... fyrir utan eitt skipti þegar að mái var með mér en reyndar sofnaði hann í sófanum þegar að 2 mín voru búnar. Skil ekkert í því.

» 9 hafa sagt sína skoðun

05.12.2006 20:10:25 / HeiZZi

Ayy mades, did yoa like the concert? (EVS)

Heyhey! Nú er kallinn búinn að vera að vinna töluvert inni á Akureyri undanfarið og líkað vel. Lenti samt í hörmulegu atviki á mánudeginum fyrir rúmri viku síðan. Var að vinna í atvinnuhúsnæði niðrá Furuvöllum sem eru rétt hjá Hagkaup. Þar er staðsett verkfræðistofan útrás, ásamt talmeinastofu sem ég man ekki hvað heitir. Allavegana þá var ég að vinna til 20, því þá var ég fyrst búinn með það sem áætlað hafði verið að ég myndi klára yfir daginn. Þegar ég ætlaði að fara voru 5 mínútur síðan að síðasti starfsmaðurinn yfirgaf húsið. Nema hvað að þegar ég er búinn að ganga frá öllu draslinu og slökkva öll ljós og ætla að fara að vippa mér út, kemst ég að því að aðaldyrahurðinni er læst að innan! Síminn minn batteríslaus og ég læstur inni! Nú voru góð ráð dýr. ég fann síma uppi á skrifstofu og hringdi í Gunnþór málarameistara á akureyri og saman fundum við aðeins 1 númer sem ég gæti hringt í. Það var hjá einhverjum Þórhalli sem er víst maðurinn hennar Siggu BÖ og að sjálfsögðu svaraði hann ekki!!! Eftir 45 magnþrungnar mínútur mundi gunnþór eftir einhverri möppu þarna inni sem stóð á eyrún og sonja. Ég prófaði að finna einhverja EYRÚN-u á Akureyri sem væri talmeinafræðingur, og viti menn, hún fannst, hún svaraði, hún kom, hún opnaði, og síðast en ekki síst lofaði ég henni að hún ætti fast sæti í erfðaskránni minni, thank god! ;) Verð að koma að sérstöku þakklæti enn og aftur til þessarrar Eyrúnar, það er ekki sjálfgefið að fólk hlaupi til að heiman seint að kvöldi og geri einhverjum greiða sem það þekkir ekki, þannig að takk kærlega! ;) Að öðru, fór á rockstar tónleikana síðasta fimmtudag og voru þeir alveg frábærir. ÁMÓTISÓL byrjaði giggið með nokkrum "hitturum" og var það alveg ágætt þótti mér, frábært hljóðkerfi einkenndi þessa byrjunartóna tónleikanna sem áður hafa sjaldan heyrst hjá íslensku bandi. Sérstaklega þótti mér nýja lagið gott með magna og félögum sem samið var eftir að hann kom heim frá USA. "Leynigesturinn" Josh Logan var næstur á svið og spilaði ein 5 frumsamin lög á kassagítar. Fyrstu tvö voru ágæt en eftir það beið maður bara eftir stjörnunum. Dilana byrjaði svo giggið fyrir alvöru, með slétt hár, risasólgleraugu og kassagítar og tók Zombie með hljómsveitinni. Svona gekk þetta koll af kolli, hver flytjandi tók bara eitt lag í einu og skipti svo út fyrir annan. Óvænt var mesta stemningin í crowdinu þegar að Magni tók Smells like teen spirit. Allt ætlaði um koll að keyra í viðlaginu og m.a. var einn tónleikagestur næstum því barinn fyrir ólæti. Ég og nóri kvörtuðum ekki þar sem að það var honum að þakka að við loksins komumst framarlega en það hafði reynst erfið fæðing fyrir. Vinsælasti söngvarinn var óneitanlega ástralinn Toby Rand, enda bæði fyndinn og skemmtilegur á sviði, auk þess að syngja nær eintóma hittara sem auðvelt var að hoppa við. Á laugardaginn vorum við Arnór svo að labba í kringlunni og hittum Toby fyrir einskæra tilviljun. Kom mér sérstaklega á óvart að þegar að nóri kallaði í hann í þeim tilgangi að fá mynd af sér með honum þá ansaði Toby kallinu strax, kom til okkar og fór að tala við okkur af fyrra bragði. Mjög viðkunnanlegur náungi og kellingatussutryllir dauðans! Ég fékk líka mynd af mér með honum og er hún geymd í símanum hans nóra eins og er. Jæja nenni ekki að skrifa meira.

» 10 hafa sagt sína skoðun

22.11.2006 18:59:56 / HeiZZi

Umræða um kynlíf, erum við orðinn siðferðislega ónæm?

Var að segja mömmu sögu um daginn, um vandræðalegt moment sem ég heyrði af (varðar kynlíf). Að sjálfsögðu fór ég fínt í hlutina og sagði ekki eitt einasta dónalegt orð. Engu að síður var þetta nóg til að sú gamla yrði alveg hneygsluð, fór hún að tala um að þetta unga fólk í dag væri alveg hrikalegt, allir riðluðust á öllum við öll tækifæri og þætti bara allt í lagi. Þetta hefði sko ekki verið svona í gamla daga þar sem að fólk sást ekki einu sinni kyssast á böllum.

Ég og Alli bróðir drógum þetta nú stórlega í efa, í fyrsta lagi "riðluðust" ekki allir á öllum, heldur einfandlega væri fólk orðið þannig í dag að það talar saman, ekki eins og áður fyrr þegar orðið r**a var bara notað í þeirri merkingu þegar að maður fer á hestbak og allir voru hræddir við að tala um sex (nema hugh hefner(svalur maður!))

Í öðru lagi var þetta líka svona í gamla daga, ÉG HEF HEYRT SÖGUR!! En eins og áður kom fram talaði fólk bara um skák og fleira skemmtilegt á þeim tíma og því sagði nonni ekki gunna frá því ef hann vissi aleinn af því að gunna, siggi og jonni höfðu farið í 3some helgina áður!! Nonni skynjaði einfandlega ekki hvað getur verið gaman að tala um svona í mánudagskaffinu sérstaklega, og þá ekki síst ef að sögurnar snérust um vini manns.

Það má vel vera að siðferði sé ekki sérgrein hjá mörgu ungu fólki í dag, en þetta er samt svo fjarri lagi að allir séu "riðlandi á öllum".... eða hvað??? Þið látið mig þá allavegana vita ef ég er að missa af einhverju ;)

Bestu kveðjur,

Heiðar


*** tekið skal fram að ofangreind nöfn eru einungis skáldskapur og notuð til að fylla upp í eyðurnar. Getur vel verið að þetta hafi einhvern tíma gerst en ég hef þá allavegna ekki heyrt það :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.11.2006 18:36:46 / HeiZZi

Loksins, úrslit í könnuninni!

Hvaða starfsmaður Fagmáls verður í bestu formi eftir veturinn?

Guðmundur H. Halldórsson, forstjóri
5%

Heiðar H. Halldórsson, nemi
51%

Sigurmundur Friðrik Jónasson, handlangari
43%


Þá er þessi könnun búin að hanga uppi í 2,5 mánuði. Ég vil þakka stuðningsmönnum mínum hollustu í minn garð og get jafnframt glatt þá með því að ég er yfirburðarsigurvegari hvað form varðar eins og staðan er í dag!!! ;)
Athygli mína vakti þó hvað frissi fékk mörg atkvæði, hann sem nennir aldrei að hreyfa sig... líklega hafa einhverjir ætlað að vera fyndnir, svei mér þá ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.11.2006 19:34:48 / HeiZZi

Prófin nálgast..... þá fer ég á tónleika :D

Sæl verið þið

Að hugsa sér það er kominn 12. nóvember. Ég og Katla fórum á rúntinn í gær og vorum einmitt að pæla í því hvað langt væri liðið á árið. Ég er rétt búinn að gera sjálfum mér grein fyrir því að vinir mínir séu farnir í skólann, en séu ekki lengur í sumarvinnunni... og viti menn, það er innan við mánuður í próf!!! 

Í síðustu viku pöntuðum ég alli og nóri miða á Magna, Toby, Dilönu, STORM (falleg maður) og Houseband of Rockstar Supernova í Laugardalshöll 30. nóvember. Djöfull skal verða gaman, ég ætla að vera eins og fífl;) Helsta markmið okkar Arnórs er að hringja í tvo félaga okkar sem báðir eru skólamenn, í þann mund þegar að við verðum að ganga inn í höllina og heyra í þeim hljóðið... spurning hvort þeir mega við því að svara okkur, enda uppteknir við próflestur þegar að þar að kemur :D:D:D æjæj....

Að öðru... ég er búinn að vera mikið heima undanfarið. Fer í vinnu, stundum í ræktina eftir vinnu en annars alltaf beint heim. Um helgar fer ég bara annað kvöldið í bæinn og er svo kominn heim fyrr en ella. Hvað er að ske? Annars er þetta rosa fínt, einbeitingin yfir alla vikuna er mikið betri og með þessu móti get ég hugsað aðeins meira fram á við.  Þetta verður ekki svona ekki svona lengi í viðbót þannig að það er eins gott að njóta þess meðan það varir;)

Eitt af því sem ég get hugsað mun meira um núna en venjulega á þessum tíma eru jólin. Ég er þessi maður sem hef aldrei geta komist í jólaskap fyrr en eftir próf (18-19 des ca.) en nú er það vandamál ekki fyrir hendi. Því er ég að hugsa um að virkja dálítið jólabarnið í mér þetta árið, gera kort og svona, þetta er nú einu sinni stemning sem er gaman að upplifa ef maður hagar því rétt! Eitt sem ég ætlaði líka að gera var að skrifa annál inn á síðuna á gamlársdag! Þetta plan mitt hófst eins og lög gera ráð fyrir um síðustu áramót og tókst svona líka helvíti vel fram í ágúst en´þá skipti sandhólafjölskyldan um tölvu og annállinn varð eftir í gömlu drasltölvunni og ég kom því aldrei í verk að koma honum á disk og halda áfram með hann! Svekkjandi þar sem að þarna var nokkuð fyndið efni á ferð, en ég sé svo sem alveg fram á það að geta bara gert þetta nú á komandi ári, ég er ekkert á grafarbakkanum þannig að það liggur ekkert á;)

Að lokum: Sigurjón Ben var í Silfri Egils í dag. Ég er ekki í vafa að hér er á ferð einn besti stjórnmálamaður norðurlands og vil ég meina að hann verðskuldi þingsæti, en hann er einmitt í framboði hjá sjálfstæðisflokknum um þessar mundir. ÁFRAM SIGURJÓN! ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

05.11.2006 15:06:24 / HeiZZi

Af íþróttaafrekum og ógeðslegum sportbörum á Akureyri!

Halló öllsömul, gaman að sjá hvað fólk var ánægt með síðasta blogg, meira að segja umræddur Bjarni fagnaði þessu framtaki mínu innilega;) Fór austur á land á þriðjudaginn var og kom aftur á föstudaginn. Það var ágætt, nokkuð létt bara. Aldrei spennandi austurlandið samt ef frá er talinn hinn glæsilegur staður Egilsstaðir! Þegar ég var á leiðinni heim á föstudaginn fékk ég flippaða hugmynd eins og vill verða þegar að ég er að koma úr svona vinnutúrum. Hugsunarhátturinn er allt: "þegar ég kem heim, þá ætla ég sko að gera þetta og þetta!". Oftast verður ekkert úr þessum áætlunum en í þetta skiptið lét ég verða að því. Þannig er mál með vexti að frá mér og til Húsavíkur eru 18-19 km eftir því hve langt inn í bæinn maður fer. Það lengsta sem ég hafði hlaupið hér á þjóðvegunum hingað til var til Hallbjarnarstaða og til baka sem eru 10 KM. Kallinn ákvað að freista gæfunnar og tjékka á því hvort hann gæti hlaupið nær helming lengra, eða frá hlaðinu á Sandhólum og heim til mikka í árholtið á Húsavík. Lagði ég af stað í þessa reisu um hálftólf leitið í gær. Þar sem ég var nývaknaður og ónærður að mestu þá gekk ég fyrsta kílómeterinn svona til að koma mér í gírinn. Eftir það skokkaði ég. Veðrið var frábært mestalla leið, logn og hiti. Ferðin gekk vel og án stóráfalla, helsta hindrunin var þegar að ég kom á Héðinshöfða en þá ákvað vindurinn að fara að láta til sín taka sem var ekkert sérstakt því ég átti eftir að fara upp leitið! Þetta reddaðist þó allt og skilaði ég mér í Árholt 20 um 13:20 eftir 1klst og 45 mínútna hlaup. Jámm, verð að segja að ég er nokkuð stoltur af þessu afreki mínu, hélt ég myndi ekki geta þetta með þetta góðu móti..... hlýt að geta þakkað Creatininu hans Reynis þetta! ;) Í gær fór ég svo með alla bróður til akureyri í tvöfalt bíó. Fyrst sáum við Borat með Sacha Baron Cohen og er hún með bestu gamanmyndum sem ég hef séð, höfðar sérlega vel til mín.;) Eftir að hafa farið í mat til Finnboga vinar okkar og ljósmyndara á Akureyri (www.dagsljos.is) fórum við með honum og mikka á The Departed sem skartar þeim Jack Nicholson, Matt Damon, Leanardo diCaprio, Mark Wahlberg og fleirum stórum nöfnum í aðalhlutverkum. Myndin er gerð að Martin Scorsese er og mjög fín að mestu og vel leikin. Sérstaklega er ég hrifinn af frammistöðu Mark Wahlberg sem stendur sig glæsilega:D Það sem skemmir fyrir myndinni er það að hún er langdregin og svo er endirinn leiðinlega sýrður. Áður en að við fórum á Borat ætluðum við að fara að horfa á Man.Utd- Porsmouth á einhverjum af þessum vinsælu sportbörum á Akureyri. Þótti mér eðlilegt að leikurinn milli liðsins í 1 og 4 sæti yrði sýndur EN NEI! Allstaðar var verið að sýna leik Liverpool og Reading eins spennandi og það hljómar nú! Djöfull var ég brjálaður, týpískt fyrir Akureyringa!

» 7 hafa sagt sína skoðun

29.10.2006 16:08:20 / HeiZZi

Byltingarkenndar hözzlaðferðir Bjarna Jónassonar!

Ég þekki marga menn með misjöfnum hætti. Háa og litla, breiða og mjóa. Allt eru þetta meira og minna myndarmenn og eiga það allir sameiginlegt að vera gagnkynhneigðir... tja nema fyrverandi vinnufélagi minn Friðrik Ómar sem var að eignast kærasta nú fyrir stuttu skv. Séð og Heyrt (Congratz Frissi;))!

Nú!

Hvað sem öðru líður þá hafa þessir félagar mínir allir mikinn áhuga á kvenfólki og nánum samskiptum við þau. Misjafnlega gengur hjá köppunum, vel hjá sumum en ekkert hjá öðrum. Einn hefur þó verið fremstur í hópi jafningja hvað hözzl varðar síðustu helgar og er það enginn annar en Bjarni Jónasson, búfræðingur frá Héðinshöfða! Síðustu 4 helgar hafa hvorki meira né minna en 3 dömur fengið að líta á herbergi hans á Akureyri með innifalinni vettfangsferð á rúmstokk bóndans.

Nú spyrja menn sem ekkert fá hvernig standi á þessu, nú sé Bjarni kannski ekki stærsti og sterkasti maðurinn þegar hann mætir í góðra manna hóf og sjálfsagt telja einhverjir sig myndarlegri en Héðinshöfðamanninn þó að það sé nú meira umdeilanlegur hlutur.

Ég undirritaður vatt mér í málið og tók viðtal við Bjarna og spurði hann hver væri lykillinn að þessum glæsta árangri. Svörin lágu á borðinu:

Bjarni: "Þegar þú mætir á dansgólfið skaltu láta eins og þér sér alveg sama um allt, rétt svo virða crowdið fyrir þér og passa þig að halda kúlinu. Því næst ferðu á barinn og biður um annaðhvort 1 stóran bjór eða tvöfaldan vodka í magic, svona fer eftir hve langt í drykkjunni þú ert kominn. Þegar þessi drykkur er langt kominn er kominn tími til átaka. Þú mætir á gólfið og passar þig að enginn vinur þinn fylgi þér, svona til að athygli kellingana séu einungis á þér. Því næst réttirðu báðar hendur uppí loft eins hátt og þá getur og um leið seturðu upp mikinn ánægjusvip. Með þessu múvi ertu búinn að láta kellingarnar vita af því að ÞÚ sért mættur á svæðið og til í allt. Þegar að þesskur ertu strax orðinn pottþéttur með einhvern árangur, þó það verði engin fegurðardís, skiptir það ekki máli, maður byrjar ekki á toppnum! Allavegana, næst fangarðu kellingu að eigin vali með augnkontakti, starir eins mikið og þú getur og þá virka augun í þér eins og segull því að umrædd kelling kemur í flestum tilvikum strax....

...þá er það dansinn, svona til að tryggj´ana! Hann fer þannig fram að þú brosir þínu breiðasta, réttir fram hægri handlegginn í brjósthæð og passar að hreyfa hann  hvorki upp né niður, heldur halda  honum beinum. Því næst hristirðu hægri höndina á báðar áttir og tekur um leið nokkur skref aftur. Venjulega hef ég ekki þurft að gera neitt meira en þetta, því þarna ertu orðinn "sure thing" í hennar augum. Ef svo ólíklega vildi til að þetta myndi ekki duga, þá reynirðu að bjóða henni í glas það sem eftir er kvöldsins".

 

Vona að allir sjái sér fært að nýta þessa aðferð í góða þágu, ekki oft sem menn fá fría kennslu í svona löguðu;)


» 11 hafa sagt sína skoðun

21.10.2006 12:27:22 / HeiZZi

Hvalveiðar!!!!!

haha, nei ég er að grínast. Dettur ekki í hug að fara að rugla um svona leiðinlegt mál!:) Barn er í heim oss fætt. Hólmgeir Rúnar Hreinsson, betur þekktur sem kollavíkur geiri (The main-hozzler from Thistilfjordur), og Rebekka Ásgeirsdóttir, frænka mín og dóttir Möggu TOLLA, eignuðust þessa líka æðislegu stelpu 19. október! Var hún 14,5 merkur og 52 cm og óska ég þeim skötuhjúum innilega til hamingju með hana:) Get ekki beðið eftir að sjá Hólmgeir arkandi með barnavagn á undan sér í bænum :P Er að fara á ámótisól í kvöld, gæti orðið stuð. Er að fara með sama genginu (bjarni, mikki og co.) Sonni ætlar held ég á eitthvað ball í mývó með mumma frænda, það gæti einnig orðið snilld :P Búinn að vera í fríi síðan á miðvikudagskvöld. Ástæðan er rjúpnaveiði innan fyrirtækisins, búinn að njóta vel! Annars er maður að fara að taka að sér aukaverk ánæstunni, mála herbergi á Sandhólum. Djöfull skal ég verða snöggur að því! Næsta úthald verður í tengslum við viðbyggingu mollans á reyðarfirði. Eitt jákvætt við það, ég get hitt hafsteinsvavarkjartansson meira en venjulega sem er auðvitað bara jákvætt! Annars er lítið að frétta... bakaradrengur er víst alvarlega farinn að reyna fyrir sér með skandinavískum stelpum... það segja þeir allavegana.....

» 3 hafa sagt sína skoðun

06.10.2006 20:58:38 / HeiZZi

Margt búið og að fara að gerast....

Var að koma frá akureyri. VAr að vinna á prentstofunni Ásprent í dag og í gær, sem var fínt. Lögðum að stað allir 3 kl 7 í gærmorgunn og vorum því mættir kl. 8 á eyrina. Fljótlega varð það ljóst að verkið var ekki jafnstórt og við höfðum haldið og því var ekki talin ástæða til að vinna lengur en til 15 í gær! Djöfull var það fínt. Hringdi í Mika sem náði í mig á Corrdanum. fór í stjörnusól (sem er allt öðru vísi en að fara í ljós heima (hitinn maður lifandi)) og var það mjög fínt. Eftir það renndum ég og miki heim til bjarna jónasonar þar sem spilaður var FIFA og komst ég að því að ég er langt frá mínum besta í þeim leik. Ég og Bjarni fórum út að hlaupa um 18 leytið en mikki kom með þá dramatísku og óvæntu ákvörðun að vera áfram í FIFA;) Eftir góðan Subway var svo farið í áttabíó með sonna, hafsteini og guðnýju á myndina Beerfest sem er frábær skemmtun og kemur verulega á óvart:P Kvöldinu var svo slitið á Barnum við hliðina á Rocco þar sem kominn var saman hellingur af liði.

Í þessarri ferð afrekaði ég að koma inn á 3 veitingastaði á Akureyri sem ég hef aldrei komið á áður (sem er afrek á 2 dögum á eyrinni). Sá fyrsti var Götugrillið sem er við hliðina á Pengs. Hafði aldrei tekið eftir þessum stað, enda illa merktur, en þetta er indverskur veitingastaður sem státar af fínum og sterkum mat, elduðum af þeldökkum ekta indverja :P  Annar staðurinn heitir All-Inn og er hálfgerð Cafeteria á Drottningarbrautinni, næs staður í alla staði. Að lokum var það svo Litla Kaffistofan en ótrúlegt nokk hafði ég aldrei komið þangað áður :S Iðnaðarmannastaður dauðans sem hefur þann ókost við sig að það angar allt í reykingarfýlu þarna en djöfull var hlaðborðið magnað, fokk! :)  say no more...

Að öðrum málum. Árshátíð skokka er á morgun og sökum fjölda áskoranna síðustu vikur hef ég ákveðið að mæta, sérstaklega í ljósi þess að ég er heima hjá mér en ekki í Lagarfossvirkjun eins og jafnvel stóð til að ég yrði þessa helgi. Kristján Þór verður veislustjóri og ÍNa verður á svæðinu líka þannig að þetta verður ábyggilega snilld;) ég var nokkuð klár á því að þessi árshátíð væri þess eðlis að það væri púkó að vera ekki með opinbert deit með sér........... þannig að ég fór að leita og eftir langa og gríðarlega stranga leit sem innihélt persónutest út og inn þá varð Hildur Eva hlutskörpust og dæmdist sjálfkrafa í starfið:D Spurning um að ná í hana heim á reiðhjóli, það myndi pottþétt heilla Gumma upp úr skónum, veit ekki með Hildi:D

En neinie að öllu gamni slepptu þá verð ég á borði með nokkrum stelpum og svo ábyggilega sigga má æfingafélaga og félaga almennt, en við ákváðum í sameiningu að fá okkur miða á festivalið:P Þetta verður bara gaman!

á sunnudag er svo bara Lagarfossvirkjun... vikuúthald sem inniheldur 10. október. Mér er alveg sama því að mötuneytið er fínt þarna fæ pottþétt gott að éta á afmælinu. Plana einnig að fara með stafrænu myndavélina og taka myndir úr "afmælisveislunni"... pælið í því, drullugir iðnaðarmenn:P líst æ betur á þessa hugmynd mína!

En sum sé, ekkert blogg í a.m.k. 10 daga, þið verðið að lifa án þess!


» 8 hafa sagt sína skoðun

29.09.2006 23:06:11 / HeiZZi

Busavígslur

Jæja, kominn tími á nýja umræðu!

Að þessu sinni er pistill minn skrifaður vegna blaðagreinar sem ég las í skarpi nú á dögunum. Þar var verið að fjalla um busavígslu FSH þetta árið, hvað hefði verið gert, myndir og þess háttar. Það sem sló mig við þessa annars ágætu grein var fyrirsögnin sem einnig mátti sjá á forsíðu blaðsins.Ef ég man rétt þá var fyrirsögnin svo hljóðandi: "Busavígsla án ofbeldis". Í greininni er talað um leiki sem farið hafi verið í (Guðmundur Birkir sló víst í gegn;)), pylsur sem Smári og Ingólfur grilluðu og fleira í þeim dúr. Í lok greinarinnar er útskriftarnemum hrósað í hástert fyrir að hafa óofbeldiskennda busavígslu o.s.frv.  

Ekki ætla ég að fara að skipta mér að því hvernig núverandi busavígslur FSH fara fram, satt best að segja hef ég nákvæmlega ekkert á móti þessu fyrirkomulagi sem nú var teflt fram. Hinsvegar hef ég góðar heimildir fyrir því að einhverjir útskriftarnemar hafi verið heitir fyrir því að gera þetta eins og venjulega en raunin hafi verið sú að kennararnir hafi bannað allt, ef frá talið er saklaust klapp, og þess vegna hafi vígslan verið svo væg í ár.... en það er önnur saga.

Eins og áður sagði var það fyrirsögnin sem sló mig. Hvaða ofbeldi hafa síðustu útskriftarárgangar beitt?? Ég var busaður TVISVAR, bæði í MA og FSH og í hvorugt skiptið fannst mér vígslan, né neitt í busavikunni minna á einhverskonar ofbeldi. Þetta var bara leikur sem gat verið nokkuð þreytandi og sóðalegur á köflum, en alls ekki eitthvað sem maður átti ekki að geta haft lúmst gaman af, þó vissulega sé skoðun manna misjöfn á því.

Í fyrra var ég svo á meðal þeirra sem busuðu (aldrei þessu vant). Framkvæmd var sama rútínan og venjulega, busar máttu bara ganga á þar til gerðum stígum í ´skólanum, þurftu að jarma, syngja, hlaupa og fleira í þeim dúr. Vígslan sjálf var mjög svipuð og venjulega, busar voru beðnir um að koma í fötum sem þeim þættu ekki vænt um, þeir voru klæddir í ruslapoka, leiddir um bæinn sem endaði í bleytu og sóðaskap á essoplaninu eins og svo oft áður. Enginn var tekinn fyrir líkamlega, né andlega svo ég yrði var við. Á egilstöðum sama dag var hinsvegar framkvæmd busavíglsa annarrar tegundar sem gekk svo langt að hún komst í fréttatímann um kvöldið. Busar þurftu að spretta heilan helling, sumir voru bundir við staura á þjóðveginum og þurtu að dúsa þar klukkutímum saman, aðrir voru látnir hanga ofan í skurðum í lengri tíma! Þetta eru bara dæmi, ekki allur pakkinnn! Þarna var gengið allt of langt og skiljanlegt að þar á bæ væri tekið í taumana. Vígsla FSH sama dag var barnaleikur í samanburði við ME og það vita allir sem sáu okkar vígslu og heyrðu svo af vígslunni á Egilstöðum.

Af þessu tilefni þykir mér nokkuð sárt fyrir hönd fyrverandi útskriftarnema í FSH að það sé gefið í skyn að við höfum beitt einhvern/einhverja ofbeldi. Allavegana miðað við þá skilgreiningu sem ég þekki af orðinu þá kannast ég ekki við að ofbeldi hafi átt sér stað í busavígslum FSH síðustu ár.

Hvað finnst ykkur???


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7